https://speedstacks.is/wp-admin/plugin-install.php?tab=plugin-information&plugin=zopim-live-chat&TB_iframe=true&width=600&height=550

UPPLÝSINGAR UM SELJANDA

Eigandi vefverslunarinnar er Smartkaup ehf., kt. 510914-0820, Garðabær.
Sími: 698-8041

AFHENDING VÖRU

Eingöngu er hægt að versla þær vörur sem eru til á lager og er það stefna okkar að senda vörurnar af stað næsta virka dag eftir að viðskipti hafa átt sér stað en einnig er hægt að velja að sækja vörur á lagerinn til okkar. Ef sá valmöguleiki er valinn þá höfum við strax samband og veitum viðeigandi upplýsingar um það hvert á að sækja. ATH að sendingarkostnaður bætist við í þeim tilfellum þar sem valið er að fá sent heim.

Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Smartkaup ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Smartkaup ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram, eins og fram hefur komið, nema að valið sé að sækja vörurnar á lagerinn okkar.

VERÐ

Öll verð í netversluninni eru í íslenskum krónum, með virðisaukaskatti (VSK) og birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Sendingarkostaður er innifalin í verði og er enginn binditími. Verð í netverslun getur breyst án fyrirvara t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða rangrar skráningar samanber ákvæði þess efnis hér að framan.

Seljandi notar örugga greiðslugátt frá DalPay. Hægt er að greiða með kreditkortum frá Visa og Mastercard, og American Express. DalPay Retail er endursöluaðili fyrir Smartkaup ehf. og á kreditkortayfirliti þínu mun standa dalpay.is +354 4122600

AÐ SKIPTA OG SKILA VÖRU

Veittur er 30 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneigninarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

GÖLLUÐ VARA

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist.
Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

TRÚNAÐUR

Seljandi heitir viðskiptavinum fullum trúnaði um allar upplýsingar sem þeir gefa upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

LÖG OG VARNARÞING

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Skilmálar þessir gilda frá 15. júlí 2017.

HÖFUNDARRÉTTUR

Allt efni á www.speedstacks.is, texti, grafík, lógó og myndir, er notað af Smartkaupa ehf með leyfi Speed Stacks, Inc.

 

 

Ctil ehf

Garðabær

Sími: 698-8041

Hafðu samband

8 + 5 =